Um mig

Nafn:

Fanney Sif Gísladóttir

Um:

Alltmögulegtkona sem elskar bækur, ljóð, prjónaskap, saumaskap og gott skap.

Tenglar

12.05.2012 19:48

Eitt brauð enn

Vona að þið lesendur góðir séuð ekki orðnir leiðir á öllum þessum brauðbakstri hjá mér, en hérna kemur eitt brauð enn sem  ég bakaði í dag og er mjög gott, uppskriftina er að finna í bókinni Heilsuréttir fjölskyldunar.


125 gr apríkósur lífrænar skornar í litla bita
225 ml vatn
3 tsk vínsteinslyftiduft
2 egg
3 mats hunang
250 gr speltmjöl
40 gr haframjöl 1 mats til að setja yfir brauðið
2 tsk salt
70 ml mjólk
50 gr valhnetur skornar í bita
1 poki grænt te


Hitið ofninn í 180 gráður.

Setjið apríkósurnar í pott ásamt vatni og tepokanum og látið sjóða í 5 mín, takið tepokann upp úr og slökkvið undir pottinum


Setjið haframjölið út í apríkósurnar og setið lok á pottinn



Hrærið saman eggjum og hunangi



Setjið speltið, lyftiduft og salt í hrærivélaskál



Setjið eggjablönduna út í hrærivélaskálina og hrærið á minnsta hraða, blandið síðan öllu nema valhnetunum saman við og hrærið frekar lítið og að síðustu blandið valhnetunum saman við með sleif. 

Setjið í form stráið haframjöli yfir og bakið í 40-50 mín í miðjum ofni


Knús á ykkur.

Fanney sem finnst gaman að baka brauð.

10.05.2012 19:41

Einn góður

Þessi rann ljúflega niður í hádeginu......mjög góður :)

1/2 banani
1/2 pera
1/4 appelsína
50 gr gul melóna
1/2 bolli blönduð ber
1 mats kókosmjöl
1/2 mats chia fræ
2 dl hrísmjólk
klakar

allt sett í blandarann

svo bara njóta.

Knús og kram 

Fanney

06.05.2012 21:58

Hjólað í góða veðrinu.

Í fyrra haust gaf Óskar mér svo fínt hjól sem er búið að vera í geymslu í vetur, en verður vonandi notað mikið í sumar. Ég og Ylur fórum í hjólatúr um bæinn í dag í góða veðrinu, ég hjólaði bæinn þverna og endilangan og Ylur hljóp með móður og másandi og var orðin svolítið þreyttur í litlu fótunum sínum og ég  ekki tilbúin að fara heim strax og smellti honum í körfuna og það fannst honum æðislegt sat þar glaður og sæll með bros á vör.

Knús frá Fanneyju sem á svo flott hjól.

05.05.2012 20:21

Grillað á góðum degi

Þegar sólin skín og veður er gott er ekkert annað að gera en að skella einhverju góðgæti á grillið.
Ég mareneraði steinbít og notaði 

2 mats sesamolía
1 mats tamarisósa
 safi úr einni lime
3 mats hunang
2 hvítlauksgeirar
biti engifer
1 chilli pipar

 ég reif niður engiferrótina, hvítlaukinn og skar chilli piparinn smátt og blandaði öllu saman í skál

lét fiskinn liggja í leginum í 1-2 tíma

nauðsynlegt að hafa gott salat með 

mér finnst mjög gott að hafa hnetur í salati, að þessu sinni var ég með heslihnetur og ristaði þær á pönnu og setti smá skvettu af tamari sósu yfir
gott er að setja balsamik gljáa yfir salatið

í sósuna notaði ég

3 mats gríska jógúrt
safa úr einu lime
1 hvítlauksrif
smá gúrkubita
dass að basiliku
saxaði gúrkuna smátt og reif hvítlaukinn og hrærði öllu saman

skar sætu kartöfluna í bita og kryddaði með maldon salti og rósmarín og hellti olíu yfir og inn í ofn 
grillaði fiskinn á hvorri hlið í ca 2 mínútur 
þetta bragðaðist mjög vel 

í eftirrétt var grillaður ananas með karmellusósu,

 ég skar ananasinn í sneiðar
og penslaði með smjöri og olíu sem ég bræddi í potti, og bjó svo til karmellusósu

karmellusósa

100 gr sykur
1 mats smjör
1-2 dl rjómi

ég bræddi sykurinn á pönnunni, setti svo smjörið og lét það bráðna og hellt rjómanum út í og lét sjóða í 4 mínútur

vanilluís, grillaður ananas og karmellusósa.......nammi nammi namm........
einfalt og gott                                                                                                                          
í eftireftirrétt fékk ég mér uppáhaldsteið frá Tefélaginu,svart te með belgísku súkkulaði

og eitt kærleikskorn.

Knús og knús

Fanney Sif.

29.04.2012 13:40

Sunnudagsmorgun

Yndislegt veður blasti við mér þegar ég gægðist út um svefnherbergisgluggann minn í morgunn, ákvað að láta þetta verður ekki fara til spillis og dreif mig af stað út í sólina.            

Fallegt veður

logn og sól 

fallegt í Tálknafirði

sól og sandur

ein af mér   
pollurinn     



ég aftur

sumir voru með kaldann á kantinum

búningsklefinn

já og ég sjálf aftur

það var komin rigning þegar ég lagði á stað heim.

Kossar og knús

Fanney Sif.

26.04.2012 21:35

Hrökkbrauð

Mér finnst mjög gaman að baka það er svona svipað róandi og að prjóna eða hekla, ég ákvað að prófa að baka hrökkkex sem heppnaðist mjög vel og er rosa gott. Uppskriftinni ætla ég  að deila hérna með ykkur kæru lesendur.



Hrökkkex uppskriftin er á tvær bökunarplötur

1 dl haframjöl
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
2 dl gróft spelt
2 dl fínt spelt
2 tsk vínsteinslyftiduft
2 tsk sjávarsalt
1 1/4 dl kókosolía eða ólífuolía
2 dl vatn

þetta er gott grunndeig svo er hægt að krydda að vild
ég sett rósmarín og reif niður parmesanost og blandaði saman við deigið.

sesamfræ til að strá yfir
egg, olía eða vatn til að pensla, ég notaði egg 

stillið ofninn á 200 gráður

byrjið á að rista sólblóma og graskersfræ á pönnu 

þar til þau eru falleg gyllt og kælið

blandið öllu saman og hnoðið deigið ég gerði það í höndunum

skiptið deiginu í tvennt og setjið á bökunarpappír

leggið aðra örk af bökunarpappír yfir og fletjið út

gott er að setja rakt viskastykki undir til að halda þessu kjurru meðan það er verið að fletja út
skerið í hæfilega bita og penslið með eggi, olíu eða vatni, ég notaði egg

stráið sesamfræjum yfir og bakið í 15-20 mín, ég bakaði í 15 mín

ilmurinn var yndislegur sem kom úr ofninum þegar kexið var að bakast

þetta hrökkkex er bæði einfalt og fljótlegt að baka.

Knús

Fanney Sif.

25.04.2012 12:08

Góð bók

Mig langar að benda ykkur á mjög góða bók sem ég las um daginn, hún heitir Ég ljúfa vil þér syngja söngva, þessi bók fjallar um tvær konur en leiðir þeirra liggja saman og samtímis tekst með þeim hjartnæm og einstök vinátta sem breytir lífi þeirra beggja. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar og tekst henni mjög vel til, næm, falleg og ljóðræn lýsinga á samskiptum tveggja ólíkra kvenna sem hreif mig upp úr skónum.

Ég ljúfa vil syngja þér söngva

Knús í hús.

Fanney Sif

23.04.2012 20:19

Hekl

Mig hefur lengi langað til að læra að hekla og er búin að vera í læri hjá handavinnu-snillinginum henni móður minni og gengur bara vel, hér er smá sýnishorn af því sem ég er búin að vera að gera.

Byrjunarverkefnið sjónvarpsteppi úr Álafoss-lopa Yl finnst voða gott að kúra á því.

Hérna sjáið þið það betur
Þessir pottaleppar eru heklaðir frekar stórir og svo þæfðir

Sumarlegur og sætur trefill sem ég heklaði úr Kauni garni
Verkefni í vinslu sem vonandi verður teppi einhvern daginn

 Bómullargarn sem heitir Bómull sport og er frá Sartúnus er í teppinu tilvonandi.

Knús á ykkur frá montnu hekl-konunni emoticon

21.04.2012 16:50

Ótitlað

Er búin að vera að prufa mig áfram með að baka brauð og er búin að prófa margar uppskriftir og þessi er sú besta hingað til.

Brauð

2 1/2 dl gróft spelt
2 1/2  dl fínt spelt
1 dl sesamfræ
1 dl sólblómafræ
1 dl kókosmjöl
1 dl hnetur að eigin vali
1 mats vínsteinslyftiduft
1/2 tsk salt
2-3 mats hunang
2-2 1/2 dl sjóðandi vatn
1 mats sítrónusafi

Allt sett saman í skál og hrært varlega saman, sett í bökunarform og bakað við 180 gráður  í 30 mín tekið úr forminu og bakað í 10 mín til viðbótar.


Bjó svo til hummus til að hafa með brauðinu, mjög gott saman.

Hummus

1 dós kjúklingabaunir
2 mats tahini
1-2 hvítlauksrif
2 mats vatn
1-2 mats ólífuolía
1 tsk tamarinsósa
paprikukrydd
cayenpipar
salt og svartur pipar

Allt sett saman í matvinnsluvél  og maukað.

Ný bakað brauð með hummus, spínati og graskersfræjum nammi namm!

Knús á ykkur

Fanney Sif.

12.04.2012 12:25

Súkkulaði-kókos sjeik

Hádegismaturinn minn í dag........þessi er æði :)


1 bananni
1  lífrænt mats kakó 
1 egg
3-4 lífrænar döðlur
1 bolli möndlumjólk
1 tsk kókosolía
1 mats kókosflögur
1 mat chia fræ
klaki

Sett í blandarann og drukkið með bros á vör.


Knús á ykkur.

Fanney Sif.


08.04.2012 10:50

8 Apríl

Í dag á ástin í lífi mínu afmæli og þennan dag fyrir 27 árum byrjuðum við að vera saman emoticon já tíminn líður hratt og árin virðast fljúga áfram og þessa daganna er afmælisbarnið að keppa við tímann og reynir að veiða eins mikla grásleppu og hægt er á þessum 50 dögum sem hann hefur til að veiða hana.

Innilega til hamingju með daginn grásleppu-kallinn minn, þú ert alltaf langflottasturemoticon
Gleðilega páska kæru þið.

Fanney Sif.

07.04.2012 16:03

Föstudagurinn langi

Það snýst yfirleitt allt um mat þessa hátíðsdaga, fara í mat og bjóða í mat, við buðum Brynjar, Gurrý, Patreki og Filippíu til okkar í mat á föstudaginn langa og áttum við saman skemmtilegt kvöld, ég er svo þákklát fyrir að eiga svona góða vini sem vilja koma í mat til mín.

Frúin í Jóhannshúsi ánægð með sig.

Alvarlegur í sósugerðinni.

Filippía sæt og fín kjólnum sem ég saumaði á hana.

Forréttur sem alltaf stendur fyrir sínu, mareneruð lúða.
  Grillaður steinbítur og svínakjöt ásamt grilluðu grænmeti og sætum karteflum.
Við höfum borðað margar máltíðirnar saman.
Ég er mikil eftirrétta-kona og að þessu sinn bjó ég til kókosbotn með súkkulðaikremi og jarðaberjaís, set inn uppskriftina seinna.
Það er ómetanlegt að eiga góða vinkonu.

Páskaknús á ykkur

Fanney Sif.

06.04.2012 11:39

Skírdagur

Áttum yndislegt kvöld í faðmi góðra vina og borðuðum dýrindis kalkún með öllu tilheyrandi.

Páskalegt og fínt

Girnilegt!

Anna og Raggi 

Ágústa og Kata 

Birta mín

Raggi og Benni

Anna og Fansla

Birta og Kata bökuðu eftirréttinn

Picasso gamli ssem er ný orðin 16 ára 112 í hundaárum.

Kata pókerspilar

Gleðilega páska kæru þið og hafið það voða voða gott.

Fanney sif

01.04.2012 12:14

Sushi-kvöld hjá stelpunum

Hittumst nokkrar vinkonur í gær og bjuggum til frábært Sushi ! borðuðum, spjölluðum, hlógum og spiluðum Fíaskó.
 Ekkert er eins gott fyrir líkama og sál að hittast og leyfa hlátrinum að leysast úr læðingi og næra sig með frábærum mat í góðum félagsskap.

Þær eru sko alveg með þetta þær Gunnhildur og Maja.
Einbeitningin í hámarki.

Nigiri með humri.


Svo flottar og fínar.

Brjálað að gera.


Þetta er alvarlegt mál.


Takk fyrir frábært kvöld kæru vinkonur.

Fanney Sif.

28.03.2012 22:36

Chia fræ

Chia fræin er nýjasta æðið í heilsu-heiminum og hef ég verið að prófa þau á ýmsan máta og líkar bara vel.

Chia fræin koma frá plöntunni Salvia hispanica og vaxa aðallega í Suður-Mexíkó. Chia fræin innihalda hátt hlutfall af omega 3 fitusýrum, ásamt flóknum kolvetnum og próteini, andoxunarefnum, B vítamínum, kalki, fosfór, magnesíum, sínki og járni. Þau innihalda einnig mikið magn vatnsleysanlegra trefja sem eru mikilvægar fyrir góða meltingu og þyngdarstjórnun. Ef maður leggur chia fræin í bleyti í vökva í nokkrar mínútur þá belgjast þau út og verða að mjúku hlaupkenndu geli sem hefur græðandi og mýkjandi áhrif á meltingarveginn. Chia fræin eru sannkölluð orkufæða og skemmtileg viðbót í daglegt mataræði sem graut, út á salat, út í jógúrt, í bakstur, sem eftirréttur og í ávaxtahristinga.

Græni sjeikinn minn sem er í algjöru uppáhaldi núna

1 banani

1/4 mangó

1 lúka frosið spínat

smá biti engiferrót

1 mats chia fræ

2 dl kókosvatn

1 dl appelsínusafi

klaki

allt sett í blandarann 


Chia grautur

1 dl chia fræ
3 dl möndlumjólk (eða önnur mjólk sem þú átt)
1 msk raw cacao (t.d. frá the raw chocolate company)
1/2-1 tsk vanilla
1/4 tsk kanill

Öllu blandað vel saman í miðlungsstórri skál og látið standa í ca. 20 mín á meðan chia fræin drekka vökvann í sig.


Chia grautur
2 msk chia fræ
2 msk goji ber
1 msk kakónibs eða kasjúhnetur
2 b möndlumjólk eða rísmjólk (eða vatn)
1 b frosin bláber/bananabitar/epli
Smá vanilla og kanill ef vill
Smá salt ef vill

Leggja chia fræ í möndlu/rísmjólk/vatn ásamt goji og kakónibs í 15 mín
Líka hægt að gera kvöldið áður
Bæta rest út í

 Fanney Sif.

Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 145
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 80087
Samtals gestir: 28830
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:21:52