08.09.2010 01:24
Hús með sál.
Já Jóhannshús er með sál eða á
að segja sálir því í því búa nokkrar sálir bæði þessa heims og annars.
Þegar við keyptum húsið þá var eitthvað að gömlu dóti uppá háalofti sem hafði verið skilið eftir sem við ætluðum að henda,meðal annars var það eldgamalt rúm sem okkur fannst engin ástæða til að vera að halda uppá.
Nóttina áður en við ætlum að hreinsa út af háaloftinu dreymir Óskari það að það kemur til hans kona og biður hann vinsamlegast að henda ekki rúminu sínu því þá hefði hún engan stað til að sofa á.
Daginn eftir fer Óskar og talar við fyrri eigendur að húsinu og segir þeim frá draumnum og tjá þeir honum að það sé rétt að það megi alls ekki henda þessu rúmi....... það hafi fylgt húsinu lengi og það tilheyri konu sem bjó í Jóhannshúsi hér á árum áður og var vinnukona.
Rúmið gamla er enn á sínum stað á háloftinu,en aldrei höfum við orðið vör við vinnukonuna okkar,meðan hún hefur rúmið sitt er hún greinilega sátt og ætla ég að leyfa henni að hafa það meðan ég bý hérna því ekki vil ég fá hana á milli.
Hamingjan er ekki fólgin í því að gera það sem þú hefur ánægju af,
heldur að hafa ánægju af því sem þú gerir.
Fanney
