Um mig

Nafn:

Fanney Sif Gísladóttir

Um:

Alltmögulegtkona sem elskar bækur, ljóð, prjónaskap, saumaskap og gott skap.

Tenglar

09.02.2012 18:45

Besta nammið.

Þetta blogg er orðið hálfgert matarblogg hjá mér, en vonandi að þið hafið gaman að því að prófa eitthvað nýtt, því að þið verðið alveg endilega að prófa þetta nammi það er ÆÐISLEGA GOTT.

Það sem ég notaði.

Ég var með 300 gr suðusúkkulaði en það sleppur alveg með 200 gr.

1. dl goji ber
1. dl trönuber
1. dl  möndlur
1  dl. graskersfræ
1. dl valhnetur
1. apríkósur
1 1/2 dl. kasjúhnetur
1/2 dl sesamfræ
maldon salt

Það þarf ekki endilega að nota þetta sem er hér að ofan, endilega að prófa sig áfram og nota það sem ykkur finnst gott.
Allt sett í blandarann og hakkað.

Svona lítur þetta út eftir að búið er hakka í blandaranum.

Setjið suðusúkkulaðið í skál og bræðið yfir vatnsbaði.


Setjið blönduna út í súkkulaðið en geymið hluta af henni til að strá yfir.
Ég sett bökunarpappír á skurðarbrettið og dreifði úr blöndunni, það er líka hægt að setja þetta í form.

Dreifið jafnt úr blöndunni.

Dreifið að lokum restinni af fræjunum yfir og setjið inn í ísskáp og látið harna.

Skerið eða brjótið í hæfilega bita.

Njótið.........

Knús á ykkur :)

Fanney Sif.
Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 145
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 80087
Samtals gestir: 28830
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:21:52